Bullið mitt
Klukkan
10.01.2006 08:33:41 / Gerða

Ojjj

Jökkkkkk hvað ég HATA íslenskt veðurfar !!!  Þegar ég fór í vinnuna í morgun var rigning og rok, allt í lagi að díla við það svosem, en þegar ég var búin, næstum 13 tímum síðar var snjó ógeð útum allt, snjóstormur í gangi og í þessum fjandans bíl sem við erum með í láni var EKKERT til að skafa af rúðufjandanum !!  Og ekki nóg með það, heldur lá stormurinn þannig á bílinn að hurðinn bílstjóramegin var frosin föst !!  Ég mátti gjöra svo vel að klöngrast inn farþegamegin og skakklappast einhvern vegin á milli sætana.  Ég þakka pent fyrir að vera ekki komin með stærri bumbu !  Sat þarna í góðan tíma með miðstöðina í botni, hef örugglega eyðilaggt rúðuþurrkurnar á því að gá hvort þetta hvíta drasl færi af rúðunni (sem það gerði ekki því það var frost í því líka) og gramsaði útúm allan bíl að gá að EINHVERJU til að skafa rúðuna með.  Fann á endanum hulstrið utan af geislaspilaranum og notaði það.  Það þarf ekki að taka það fram að ég var EKKI klædd fyrir þetta, skítkalt á löppunum og freðin á puttunum !

Ef þetta verður svona á morgun líka þá stel ég mér tímabundið Esso kraftgalla......þeir klikka varla í svona ;)

 

Nenni ekki meir......vinna á morgun.......og svo 2ja daga frí, vúhú !!

 

Yfir&út !!

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.01.2006 13:03:02 / Gerða

Jasso !

Þið segið allt þetta !

 

Ég fór á Akurueyri á fimmtudaginn, skrapp í sónar og svona ;)  Krílið stækkar og dafnar vel :)  Ótrúlegt að sjá muninn á sónarmyndunum sem eru teknar með 4 vikna millibili, hefur stækkað um 40 mm !!  Það er nú bara slatti :)

Keypti mér líka nýjan skanna, hinn var farinn að vera með stæla þannig að honum var bara skipt út ;)  Hitti Lenu mína líka alveg óvænt, þannig að ég fæ ekki skammir fyrir að vera ekki í bandi þessa ferðina :)

 

Gærdagurinn fór bara í leti.........og að rífa jólin niður.  Matthías var ekki pent sáttur við það, hann vill sko hafa jólin áfram !  Gengur hérna um með jólasveinahúfu í mótmælaskyni hehehe :)  Svo fengum við hringingu frá Önnu Kr. seinnipartinn í gær, með penni ósk um að Þorsteini yrði pakkað saman og sendur til hennar......eða þ.e.a.s. Óskars..........honum leiddist eitthvað og vildi fá Þorstein yfir í gistingu og alles :)  Þorsteinn varð svooooo spenntur, þetta er í annað sinn sem hann gistir hjá vini sínum !  Hann hringdi nú í gærkvöldi, hélt ég hefði gleymt að koma með sængina hans (sem hann þurfti ekki að hafa meðferðis) og sagði mér hvað þeir hefðu fengið að borða........"við fengum sko pizzu og svona kók í glerflösku !"  Það var víst ekkert lítið sport hehehe :)    

Svo þegar ég hringdi áðan að athuga með hann þá fékk ég bara þau skilaboð að þeir félagarnir ásamt pabba Óskars væru sko að fara að reka hross eða eitthvað svoleiðis........væri í einhverju hrossastússi og honum yrði skilað einhvern tímann :)  Ferlega gaman að því :)

 

Hafið það gott elskurnar...........yfir & út !

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.01.2006 22:28:22 / Gerða

JEIJ !!

Bloggið mitt er komið í lag :D :D  Ég ætla nú samt að halda áfram að blogga á nýja staðnum, http://gerda.blogdrive.com/ , en held áfram með þetta eitthvað líka.......bara til að hún Anna Kr. mín hafi nú eitthvað að lesa í vinnunni, það er nefnilega ekki hægt að skoða síður af erlendum serverum þar :/
 
Náði að lumbra hressilega á þvottaskrímslinu í gær, bara smá eftir :)  Náði líka að horfa á 2 af þeim 3 myndum sem ég tók mér á gamlársdag og gleymdi að skila............2svar !!  8|
 
Vinna í dag og fyrsta mæðraskoðunin :D :D  Setti allt um hana á bumbusíðuna, þannig að þið sem viljið skoða og vitið hvert á að fara, gjössovel, þið hin verðið bara að emaila mér og ég segi ykkur hvar :)
 
Sjáumst síðar......................adjö !
 

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.01.2006 15:14:48 / Gerða

Sunnudagur 1. janúar 2006

 
Góðan dag og gleðilegt ár allir saman :)
 
Við höfðum það fínt í gærkvöldi, Solla og Smári Þór komu í mat og Smári gisti svo hjá okkur þar sem mamma hans fór á skrall ;)  Vorum með hamborgarhrygg og léttreyktann lambahrygg líka, meiriháttar :)
Nutum frábærrar flugeldasýningar útum gluggan hjá okkur, sýningin var á túninu fyrir framan húsið ;)  Laugi fór svo og skaut upp með krökkunum einhverju smá, og svo restinni um miðnættið.  Þá var Matthías sofnaður, á venjulegum degi þegar við erum að berjast við að hann sofni eftir leikskólann, skal hann alltaf sofna............en í gær þega það var allt í lagi þótt hann sofnaði, þá vakti hann allan daginn og var svo útkeyrður um kvöldið !  Horfðum á fréttaannálana......og skaupið sem gjörsamlega floppaði að okkar mati.  Einu skiptin sem ég glotti útí annað var þegar Laddi var á skjánum.  S.s. við urðum fyrir miklum vonbrigðum með þetta skaup.
 
Ég ætlaði í gær að setja niður minn annál fyrir árið, en það varð ekkert af því, ég var að vinna í gær og bara nennti því ekki þegar ég kom heim.  Fljótt á litið er þetta það helsta sem gerðist hjá okkur á nýliðnu ári:
 
Í byrjun sl. árs var Laugi í námi og ég var að vinna í Nóatúni í Grafarholti.  Við komumst að því í byrjun febrúar að við ættum von á barni, sem við svo misstum skömmu síðar :(
Ég fór í mína árlegu sumarbústaðarferð með Lindu og Lindu Kristínu í mars og í þeirri ferð hrundi vélin í Sonötunni okkar.  Og eitthvað fleira í framhaldinu..........og allt eftir að við kláruðum að borga hana !
Laugi stóð sig mjög vel í prófunum á vorönninni, rétt eins og krakkarnir sem brilleruðu í skólanum :D  Ég skrapp til Eyja í maí, skömmu eftir að ég varð þrítug ;)
Svo fórum við í gott sumarfrí, fórum norður og höfðum það mjög gott.  Í þeirri ferð kviknaði sú hugmynd að það gæti verið ofsalega gaman og gott fyrir okkur ef við myndum flytja....................sem við og svo gerðum í ágúst.  Okkur líður ofsalega vel hérna og krökkunum líður vel líka, gengur vel í skólanum, og Matthías fór á leikskóla í fyrsta sinn og gengur mjög vel.  Kristófer Ingi stundar fótboltaæfingar með skólanum og Sunna Dís og Þorsteinn Vestmann eru í íþróttaskóla líka :)
Ég fékk mjög góða vinnu sem mér líður ofsalega vel í, er að vinna með frábæru fólki :D
Í október keyptum við okkur nýjan (2003) bíl, 7 manna Kia Carnival, LOKSINS komin á stórann bíl :D  Gamla Sonatan fór í niðurrif.
Skömmu eftir það komumst við að því að við ættum von á barni..........og það hélt sér í og er ekki farið :D :D :D
Í nóvemberlok sá loksins fyrir endann á forræðismálinu sem við vorum búin að standa í á árinu............það náðist loksins sátt sem ég vona að allir séu sáttir við, það hefur gengið mjög vel eftir það, og ég vona svo sannarlega að það verði þannig áfram :) 
Svo höfðum við það bara gott í desember, eins og þið hafið væntanlega verið að lesa undanfarið, nenni ekki að rifja það upp ;)
 
En allt þetta hefði ekki verið hægt nema fyrir hjálp með fullt fullt af fólki og vil ég hér með þakka kærlega fyrir okkur, þið vitið öll hver þið eruð :D
 
Þá er þetta komið held ég bara................þar til næst............bæjó :)
 

» 104 hafa sagt sína skoðun

29.12.2005 22:41:46 / Gerða

Fimmtudagur 29. desember 2005

Jæja gott fólk.........
 
Ekki mikið að frétta svosem, er búin að vera lasin undanfarna daga, með ógeðslega kvefpest og illt í maganum :(
Hef samt farið og gert uppgjörin og svona uppí Skála þar sem Anna Kr. og co skruppu vestur um áramótin :)
 
Sunna og Kristó komu heim í gær, æðislegt að fá þau heim aftur :)  Það var farið beint í að rífa upp pakkana sem biðu þeirra, og þau voru ofsalega ánægð með þetta allt saman.  Ég held samt að það hafi staðið uppúr hjá öllum krökkunum Play Station II tölvan sem þau fengu frá okkur, ásamt leikjum ;)  Matthías fékk DVD Kids, þannig að núna á HANN tölvu eins og hinir ;)
 
Ég er búin að lesa 3 af þeim 5 bókum sem við hjónin fengum í jólagjöf, alveg meirháttar allar saman
 
Vetrarborgin eftir Arnald Indriðason
Tími Nornarinnar eftir Árna Þórarinsson og
Tími minn er nóttin eftir Mary Higgins Clark.
 
Og svo pöntuðu Halla og Lena far í gærkvöldi til LONDON !!  Það er jólagjöfin til mín frá mínum ektamaka :D  Við förum allar saman ásamt fleirum í mars, hlakka ekkert lítið til sko :D
 
Ætla að láta þetta duga í bili..............þar til næst.........bæjó !! :)

» 116 hafa sagt sína skoðun

26.12.2005 21:43:06 / Gerða

Annar dagur Jóla 2005

Gott kvöld :)
 
Jæja, aðfangadagur rann sitt skeið eins ljúflega og hægt var.  Borðuðum góðan mat og og höfðum það gott :)  Pakkaflóðið var fljótt að hverfa........strákunum gekk mjög vel að opna og skoða og allt það :)  Við fengum margar góðar gjafir og vil ég hér með þakka fyrir okkur :)
 
Á jóladag fórum við yfir fjallið í jólakaffi til Oddu og Gústa, það var líka mjög ljúft :)
 
Svo var ég að vinna í dag, stuttur dagur samt...........og svo vinna á morgun líka :)
 
Sjáumst síðar..............búið í bili !

» 108 hafa sagt sína skoðun

24.12.2005 15:53:53 / Gerða

Aðfangadagur jóla 2005

 
Jæja elskurnar, þá er þetta alveg að bresta á :)
 
Við fórum í morgun uppá Mýrar í möndlugraut, alveg meiriháttar gaman :)
Svo komum við heim og kláruðum smá frágang, og svo kíktu jólasveinar í heimsókn með pakka handa strákunum, sem þeir (og við) nutum góðs af.......DVD myndir sem hentuðu mjög vel svona til að stytta tímann ;)
 
Ég braut gamla venju, opnaði öll jólakortin áðan og hengdi þau á 2 snúrur með pínulitlum klemmum, alveg æðislegt :D :D
 
Núna er jólabað í gangi hjá drengjunum, steikin mallar og jólin geta komið :)
 
Ég vil óska ykkur öllum gleðilegra jóla, megi allir góðir vættir passa uppá ykkur og hafiði það sem allra best :)
 
Jólakveðja
Gerða og co.

» 118 hafa sagt sína skoðun

24.12.2005 01:16:47 / Gerða

Jólin koma á morgun !

Jæja börnin góð..........núna er þetta alveg að skella á :)
Ég og Þorsteinn fórum í Skálann í hádeginu í skötu........og þegar kom til þá vildi Þorsteinn ekki einu sinni smakka, lyktin fór eitthvað í hann ;)  Ég gat komið niður nokkrum bitum og síðan ekki meir, hún var svo svakalega kæst ;)
Ég og strákarnir fórum í kvöld í aðra skötuveislu, norður á Krók hjá Bjössa og Siddý.  Ofsalega gaman, góð skatan og meira að segja Matthíasi fannst hún góð :)
 
Núna er komin ró á alla..........bóndinn skriðinn í bælið, og strákarnir sofnaðir fyrir löngu síðan.  Þeim tókst þó að skreyta jólatréð áður...........og það þarfnast lagfæringar hehehe :)  En við ætlum í það í fyrramálið........alltof þreytt núna.
Ég ætla að skríða uppí líka, það bíður mín hreint á rúminu eins og alltaf á þessum tíma árs :) :) :)
 
Þessi skrítni kall er sá síðasti sem kemur til byggða þetta árið og gefur í skóinn :)
 
 
Þrettándi var Kertasníkir, 
-þá var tíðin köld, 
ef ekki kom hann síðastur 
á aðfangadagskvöld. 

Hann elti litlu börnin, 
sem brostu glöð og fín, 
og trítluðu um bæinn 
með tólgarkertin sín.
 

» 83 hafa sagt sína skoðun

22.12.2005 23:42:20 / Gerða

2 dagar til jóla !!

Fórum á Akureyri í dag, eyddum fullt af pening, eyddum of miklum tíma.......vorum lengur en til stóð.  Held að ástæðan hafi verið að við vissum ekkert hvað við áttum að gefa krökkunum.......endalaus tími sem fór í það að finna eitthvað.
 
Jólin alveg að koma...............þessi sveinki kemur í nótt:
 
 
Ketkrókur, sá tólfti, 
kunni á ýmsu lag.- 
Hann þrammaði í sveitina 
á Þorláksmessudag. 

Hann krækti sér í tutlu, 
þegar kostur var á. 
En stundum reyndist stuttur 
stauturinn hans þá.
 

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.12.2005 23:44:59 / Gerða

3 dagar til jóla !!!

Ég á frábærasta yfirmann ever !!  Ég átti að vinna í dag, en samdi um að fá að koma seinna inn þar sem að Sunna og Kristó voru að fara með rútunni til mömmu sinnar.  Svo fékk ég bara að vera áfram heima, með því skilyrði að liðið gæti hringt ef eitthvað væri og ég kæmi í kvöld að gera uppgjörið, sem ég og gjörði ;)  Takk Anna, you're the greatest :D :D :D :D
Þannig að ég græddi auka dag í jólaundirbúning, kom pökkum á póst, og kortum.......bjó til fleiri jólagjafir og gekk frá þeim.  Þannig að núna er sáralítið eftir, við skötuhjúin förum á morgun í loka verslunarleiðangur á Akureyri (aftur takk til Önnu, ég á að vera að vinna á morgun :lol: )
 
Jólin koma...........jólin koma..............og þessi sveinki kemur til stilltra krakka í nótt ;)
 
 
Ellefti var Gáttaþefur 
-aldrei fékk sá kvef, 
og hafði þó svo hlálegt 
og heljarstórt nef. 

Hann ilm af laufabrauði 
upp á heiðar fann, 
og léttur, eins og reykur, 
á lyktina rann.
 

» 120 hafa sagt sína skoðun

20.12.2005 20:37:14 / Gerða

4 dagar til jóla !!!!

Dagurinn byrjaði á morgunkaffi á Mýrum, þar var glatt á hjalla eins og venja er í svona "morgunköffum" þar :)
Ég og Halla fórum svo á Hvammstanga í fótsnyrtingu.........þvílíkt þæginlegt :)
Kom svo heim og fékk hjálp frá Lauga við að klára að pakka jólagjöfum niður og svona, pakkarnir í Garðinn og til Eyja komust víst ekki í póst í dag, en eru tilbúnir til póstsendingar strax í fyrramálið.
 
Annars er ég í voðalega litlum fíling fyrir jólin...........finnst þau verða andstyggilega stutt eitthvað 8|
Hann hlýtur þó að láta sjá sig................fílingurinn þ.e.a.s.
 
Bless í bili....................
 
 
 
Tíundi var Gluggagægir, 
grályndur mann, 
sem laumaðist á skjáinn 
og leit inn um hann. 

Ef eitthvað var þar inni 
álitlegt að sjá, 
hann oftast nær seinna 
í það reyndi að ná.
 

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.12.2005 22:17:19 / Gerða

5 dagar til jóla !!

Sælt veri fólkið :)
 
Er búin að afreka slatta í dag, klára jólagjafafrágang, pakka þeim inn (með hjálp frá mínum elskulega eiginmanni), skrifað á jólakort, farið með Kristófer í klippingu.......
Þannig að á morgun fer í póst héðan pakki til Eyja og annar í Garðinn :)
 
Ætla að fara að sofa, var vakin alltof snemma í morgun ;)
 
Þessi jóli kemur í nótt.............
 
 
Níundi var Bjúgnakrækir, 
brögðóttur og snar. 
Hann hentist upp í rjáfrin 
og hnuplaði þar. 

Á eldhúsbita sat hann 
í sóti og reyk 
og át þar hangið bjúga, 
sem engan sveik.
 

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.12.2005 00:21:16 / Gerða

6 dagar til jóla !!

 
Skyrjarmur, sá áttundi, 
var skelfilegt naut. 
Hann hlemminn o’n af sánum 
með hnefanum braut. 

Svo hámaði hann í sig 
og yfir matnum gein, 
uns stóð hann á blístri 
og stundi og hrein.
 

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.12.2005 01:16:20 / Gerða

7 dagar til jóla !!

Er að vinna um helgina, var að koma heim af "litlu jólunum" í vinnunni, mikið gaman, mikið grín :) :)
 
Þessi jóli kemur í nótt: 
 
 
Sjöundi var Hurðaskellir, 
-sá var nokkuð klúr, 
ef fólkið vildi í rökkrinu 
fá sér vænan dúr. 

Hann var ekki sérlega 
hnugginn yfir því, 
þó harkalega marraði 
hjörunum í.
 
 

» 0 hafa sagt sína skoðun

16.12.2005 23:01:56 / Gerða

8 dagar til jóla !

Þessi kall kemur í nótt að gefa í skóinn........
 
Sá sjötti Askasleikir, 
var alveg dæmalaus.- 
Hann fram undan rúmunum 
rak sinn ljóta haus. 

Þegar fólkið setti askana 
fyrir kött og hund, 
hann slunginn var að ná þeim 
og sleikja á ýmsa lund.

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti